Lífið á tímum COVID-19
Við erum að upplifa einstaka tíma. Upplifunin minnir á hamfarakvikmyndir eða vísindaskáldsögu. Á einum mánuði hefur daglegt líf okkar allra gjörbreyst.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Allt það sem við höfum talið sjálfsagt hingað til, einsog að faðmast, heimsækja vini og ættingja, sækja kvikmyndahús, leikhús og tónleika, fara í líkamsræktarstöðina, sund eða á kaffihús, er nú bannað. Að fara út í matvörubúð er orðið að áhættuför sem þarf að undirbúa vandlega og framkvæma eftir ströngum öryggisreglum. Enn sjáum við ekki fyrir endann á faraldrinum né afleiðingar hans og það veldur mörgum óöryggi og kvíða.
Á sama tíma erum við á Íslandi afskaplega heppin í samanburði við aðra jarðarbúa sem eru eða munu kljást við faraldurinn. Við erum með góða innviði, öflugt heilbrigðiskerfi og hagkerfi sem mætt getur ófyrirséðum kostnaði. Einsog áður þegar áföll skella á þjóðinni finnum við fyrir samheldni landsmanna.
Hvert okkar þarf að leggja sitt af mörkum með því að hlíta fyrirmælum Almannavarna og að hlúa að okkur sjálfum. Það getum við m.a. gert með því að nýta þennan COVID tíma á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Mörg okkar eru sjálfsagt nú þegar að nota tímann til að hreinsa upp gamlar syndir einsog að fara í gegnum lyfjaskápinn og henda útrunnum lyfjum, taka til í sokkaskúfunni, endurraða í geymslunni og annað þess háttar.
En svo er um að gera að gera líka eitthvað skemmtilegt og fræðandi. Í fréttabréfinu að þessu sinni setjum við fram nokkrar tillögur um hvernig hægt er að nýta þennan tíma á jákvæðan hátt um leið og við látum okkur hlakka til þegar við megum aftur gera hvað eina sem okkur sýnist.
Með bestu kveðju,
Hjördís Hendriksdóttir
formaður stjórnar Vöruhúss tækifæranna
netfang: vt@voruhus-taekifaeranna.is