Að strengja nýársheit er aldagömul hefð og er talið að yfir 50% íbúa hins vestræna heims, og víðar, strengi heit um hver áramót. Algengast er að fólk einsetji sér að halda áfram góðum venjum og breyta óæskilegri hegðun til að ná persónulegu markmiðum eða að bæta líf sitt á annan hátt. Kannanir sýna að 88% þeirra sem strengja áramótheit standa ekki við þau og eru konur ólíklegri til þess. En hver er þá munurinn á þeim sem ná að standa við áramótaheitin og þeim sem ekki tekst það?
Vísbendingar eru um að 35% hafi sett sér óraunhæf markmið og að 33% fylgdust ekki með framvindu sinni í að ná þeim. Kannanir benda til að líklega 10% þeirra sem strengja áramótaheit strengi of mörg heiti. Þá gleymdu 23% þeirra sem strengdu áramótaheit hreinlega hvaða áramótaheit þeir höfðu sett sér!
En hvað með þessi 12% sem tekst að standa við áramótaheitin sín? Hvað getum við lært af þeim?
Markmiðin þurfa að vera skýr, mælanleg og tímasett. Að setja sér almenn og óljós markmið eins og „að léttast á nýju ári“ og „að hreyfa sig meira“ (sem eru á meðal algengustu áramótaheita) er ekki vænlegt til árangurs. Árangursríkara er að skrifa niður markmið áramótaheita og þann jákvæða ávinning sem fæst með því að ná markmiðinu. Skilgreindu til hvaða aðgerða þú þarft að grípa til þess að ná þeim, tímasetja þær og hvenær markmiðinu á vera náð. Almennu dæmin hér að ofan um að „léttast“ og „hreyfa sig meira“ gætu því litið svona út:
Markmið:
- Að auka hreyfingu og léttast
- Ávinningur: bætt heilsa, léttari lund og betra útlit
- Aðgerðir: að hreyfa sig utandyra a.m.k. 1 klst á dag
- Mælieining: Byrja á 20 mínútna göngu á dag og bæta við 10 mínútum á mánuði.
- Markmiði um 1 klst. hreyfingu utandyra náð 31. maí 2021.
Þegar hugað er að markmiðasetningu er gott að velta fyrir sér hvað það er sem veitir þér orku og hamingju og hvað skiptir þig mestu máli í lífinu. Hér að neðan eru algengust áramótaheitin:
- Bætt matarræði (71%)
- Meiri líkamleg hreyfing (65%)
- Léttast (54%)
- Eyða minna og spara meira(32%)
- Læra nýja færni eða að taka upp nýtt áhugamál (26%)
- Hætta að reykja (21%)
- Lesa meira (17%)
- Skipta um starf eða starfsvettvang (16%)
- Drekka minna áfengi (15%)
- Eyða meiri tíma með fjölskyldu og vinum (13%)
Síðasta ár einkenndist af boðum og bönnum sem settu einhverjar hömlur á daglegt líf okkar flestra. Nú eru bólsetningar gegn Covid-veirunni hafnar og við sjáum fyrir endann á þessu fordæmalausa ástandi eftir einhverjar vikur. Þangað til getum við nota tímann til að setja okkur markmið fyrir árið 2021 og skipuleggja hvernig við getum unnið að þeim. Hægt er að finna alls konar hugmyndir og tækifæri á vefgátt Vöruhúss tækifæranna.
Stjórn Vörhúss tækifæranna óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs og vonumst til að heyra tillögur og ábendingar frá ykkur á árinu um hvaða tækifæri kæmu ykkur að mestum notum í að ná markmiðum ykkar fyrir 2021.