Það er auðvelt og ódýrt að njóta fjölbreyttrar listmenningar í Reykjavíkurborg fyrir 67 ára og eldri. Menningarkort Reykjavíkurborgar kostar einungis kr. 1.800 á ári og veitir aðgang að Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum, Ásmundarsafni, Borgarsögusafni Reykjavíkur, Árbæjarsafni, Sjóminjasafninu í Reykjavík, Landnámssýningunni og Ljósmyndasafninu. Hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur fæst bókasafnskort gegn framvísun kortsins.
Auk þess veitir Menningarkortið afslætti og tilboð á fjölmarga viðburði, tónleika, og kvikmyndahús. T.d veitir kortið afslátt á miðum í Tjarnarbíó, Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Sinfóníuhljómsveitina, Íslensku óperuna, Þjóðaminjasafnið, sýningar í Perlunni og Bíó Paradís. Þá veitir kortið afslátt í Viðeyjarferjuna.
Auk þess fá handhafar Menningarkorts Reykjavíkur send sérstök tilboð reglulega.